Esther Gestsdóttir
Esther heiti ég og er fædd árið 1984 og er Ólafsfjarðar mær! Ég á bestu foreldra í öllum heiminum, Þau styðja mig og styrkja þegar að ég hef þörf á því og eru alltaf til staðar! Þau heita Steina og Gestur Ég á tvö systkini sem að heita Anton Geir og er fæddur 1990 og svo Alexíu Maríu sem er fædd 1996.... Svo á ég eina litla mús... Sem heitir Guðmundur Orri og er fæddur 2005... Hann er það besta sem að ég hef gert Og er mér allt! Án hans væri líf mitt ekki svona æðislegt Ég og Guðmundur Orri búum í litlu sætu íbúðinni okkar og höfum það mjög gott Svo má ekki gleyma henni Jönu okkar... Hún er kærastan hans Antons og er fædd árið 1990
Ég er að vinna í Skiltagerð Norðurlands... (Besti vinnustaður í heimi) og svo aðrahvora helgi vinn ég á OLÍS! En þá er pabbahelgi! Á meðan að ég er að vinna í Skiltagerðinni þá er G. Orri á leikskólanum!
Ég á nokkrar góðar vinkonur en ég vil frekar eiga fáa góða vini og þá fleiri kunningja! Svo má ekki gleyma öllum æðislegu ættingjunum mínum sem að standa eins og klettar við bakið á mér þegar að ég þarfnast þeirra... Takk þið öll