1.2.2008 | 17:22
Mar er ekki maður með mönnum nema mar eigi bloggsíðu!
Hæhæ allir
Ég ákvað að gera mér síðu svo að ég geti skrifað um það sem að brennur á hjarta mér á hverjum degi. Ég mun nú samt líklegast ekki blogga á hverjum degi hehe það er að segja ef að ég þekki mig rétt þá mun ég ekki gera það! En svo mun ég setja inn nokkrar myndir af daglega lífinu okkar.... við erum samt með aðrar síður... Guðmundur Orri er með Barnalandssíðu og ég með Myspacesíðu!
En já þá er komin helgi... Og ég er að spá í að hafa þetta algjöra dekurhelgi hjá okkur G. Orra.... Ég lét fjarlægja hálskirtlana mína fyrir 2 vikum og gat ekki hugsað mikið um pjakkinn minn fyrstu 10 dagana eftir... Svo að ég er farin að þrá það að dekra við hann! Fara út á stigasleða og svona..... Núna eru þeir frændur.. Guðmundur Orri og Björn Ísfeld að horfa á dvd og ég gaf þeim snakk og svala... Svona smá forskot á helgina hehe.... En ætla að hafa þetta stutt núna! Ætla að fara að leika við pjakkana... Hafið það gott um helgina og gangið hægt um gleðinnar dyr
Jæja Esther kveður að sinni
En vil bara segja að Hildur mín er 22 ára í dag... Til lukku með það
Athugasemdir
Nau nau bara allt að gera í bloggheiminum í dag!! En farðu nú ekki fram úr sjálfri þér, það getur verið erfitt að fara út á stiga sleða, sérstaklega í svona miklu frosti eins og er spáð.
Sé þig eftir viku:)
Sunna (IP-tala skráð) 1.2.2008 kl. 17:26
Bliiiisar ! Gangi þér bara vel með þetta, gott að geta fylgst með prakkaralátunum í þér, hehe.
Sé þig sæt ;)
Lalli Lagari (IP-tala skráð) 1.2.2008 kl. 18:19
Gaman að sjá að þú sért farin að blogga, þá get ég fylgst ennþá betur með þér skvís ;) Væri nú gaman að sjá þig einn daginn :)
Marsibil (IP-tala skráð) 1.2.2008 kl. 20:14
Nau nau nau til hammó með Síðuna elskan mín!! Þetta verður náttla sett á favorite listan og tjékkað á þér daglega;) En takk fyrir að minnast á mig honey!! Alltaf gott að eiga góða að=* En annars bara að skilja eftir mig smá spor elskan mín!!
Kv.Hilla Pilla
Hilla Pilla (IP-tala skráð) 2.2.2008 kl. 23:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.