15.3.2008 | 23:41
Mrs. Stranger....
Jæja gott fólk veit ekki alveg hvað ég á að skrifa hérna frekar en vanalega... En þetta er bara búinn að vera helvíti fínn dagur hjá okkur pjakk.... Ég fór í ræktina í hádeginu með Sunnu og Kamz og svo pottinn á eftir...Bara nice Svo fórum við pjakkur út að leika okkur og moka lóðina... Til að búa til "bílaplan" hehe... Svo var það bara dinner hjá gömlu... (eins og alltaf) hehe og svo kósýheit í kvöld....
En ég ætla að segja aðeins hérna í nokkrum orðum um það hver ég er En já allavega þá heiti ég Esther og er 84 módel... og er fædd og uppalin í Ólafsfirði! Móðir mín er Ólafsfirðingur og pabbi er Siglfirðingur... Svo að ég er 1/2 Siglfirðingur... Ég á 2 systkini... Anton 17 ára og Alexíu 12 ára.... Ég er einstæð móðir með eitt barn... Strák sem heitir Guðmundur Orri og er 3 ára Ég og pjakkurinn minn búum saman í litilli sætri íbúð í firðinum fagra og höfum það mjög gott.... Ég vinn í Skiltagerð Norðurlands og aðra hvora helgi á OLÍS. Mér finnst voðalega gaman að fara út að skemmta mér með vinum mínum og svo er ræktin komin á hobby listann hjá mér hehe.... Ég myndi segja að ég sé stundum dáltið ofvirk og get ekki verið kjurr... Þarf alltaf að vera að gera eikkað... Ég er 169cm á hæð... 40 kg..hóst! hehe Ætla ekki að koma með búbbastærðina hehe... skóstærð 39!!! Ég hef virkilega gaman að því að kynnast nýju fólki Ég fer í laxveiði með föðurfjölskyldunni minni einu sinni á ári og ég elska þetta sport... Elska líka að fara til útlanda og sleikja sólina... Ég myndi segja að ég sé mjög mikill snyrtipinni.... Sumir segja að það sé hægt að borða af gólfinu hjá mér en oj það myndi ég ekki gera hehe... UUU og já ég er æðisleg mamma hehe... Þótt ég segi sjálf frá - en hann elskar mig bara svo mikið að ég hlýt að vera góð við hann.... Og ég elska vini mína út af lífinu.... Ég er með bíladellu... Finnst voða gaman að skoða bílasölur og fá að prufa bíla... Sumir sklija mig ekki en ég elska þetta... Langar ógó mikið í krossara en ætli sá draumur verði ekki að bíða aðeins... Ég get ekki allt hehe.... Jæja veit ekki hvað ég get skrifað meira um mig.... Leiddist bara og hafði ekkert til að blogga svo að ég ákvað að gera þetta bara..... Kemur kannski að gagni hehehe...
En jæja hef það þá ekki lengra í bili.... Ef þið viljið kynnast mér betur þá er það esthergests@hotmail.com
En já ég hef ákveðið það að minnka barferðir mínar svo að ég geti eytt peningunum mínum í eikkað mikilvægara... Stelpur... Þið hjálpið mér að muna það.... Er soddann Gullfiskur!
...Mrs. Stranger out...
Athugasemdir
Vó það mætti bara halda að maður væri komin inn á einkamál.is;) hehehe
En takk fyrir ræktina, verð ekki sátt fyrr en þú rífur þyngdina upp sem þú varst að reyna við í gær og hættir að segja sæll og gefast upp;) hehe
Sunna (IP-tala skráð) 16.3.2008 kl. 09:41
Sunna, ertu viss um ða þu hafir ekki ruglast á bloggum
Verð samt að segja ða ég hló upphátt þegar ég sá kommentið með einkamál.is. Annars ætlaði ég bara að blogga, mannst að það er rækt á morgun, mæling á hinn :$ Shiiiiiit, það verður fróðlegt.
Siggi Skipatrol (IP-tala skráð) 16.3.2008 kl. 17:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.