Hvað er títt lagsi?

Haldiði ekki að kella sé komin með neglur... Enn einu sinni.. Nema í þetta skiptið ætla ég að halda þeim á mér og komast í viðgerð... Það verður sko enginn Nenni Nagari núna.... En best að segja samt ekkert of mikið um það hehe... En Hildur er svo mikill snilli og við vorum búnar að grenja svo úr hlátri.. Hún tók einhvern svaka dans þarna sem að hún skírði "Flösudansinn" hehe og á meðan að hún dansaði þá var ég föst með hendurnar inni í einhverjum hitadæmiseikkað hehe og gat ekkert hreyft mig svo að ég þóttist vera einhver svaka píanósnilli hehe... Svo fór umræðan eikkað út í brasilískt wax og hún gamla grilluð fór að spurja mig hvort að ég vildi fá skapahár sem skraut á neglurnar Bwahaha.. Og svo var ég með pínu nagaða putta.... Surprise... En já það voru 3 puttar sem að voru aumir og hún alltaf að kreysta á mér fingurnar og fattaði það ekkert fyrr en að ég kom með einhver undarleg hljóð heheh svo að húmorinn um skarutið endaði með því að ég yrði með skapahár og gröft ... SEXY.... En svona er útkoman....

20032008

En það er semsagt pabbahelgi núna og vinnu helgin mín... Guðmundur Orri fór í gær til pabba síns og ég var svo geggjað leið í gær eikkað og brjáluð í skapinu... Bæði afþví að músin mín væri að fara og svo hata ég sumt fólk hér í bæ sem er að segja að ég sé ógeðlseg móðir... En allavega þá var ein kona að segja að ég væri alltaf blekuð um pabbahlegar og ég meina ég skammast mín ekkert fyrir það að fara að skemmta mér þegar að G. Orri er hjá pabba sínum en það er ekki málið heldur sagði hún að það væri ekki nóg fyrir mig að djamma bara þá heldur væri ég alltaf með partý hérna þegar að ég væri með G. Orra og væri ekkert að sinna honum Devil Og myndi svo bara láta systur mína hugsa um hann og hún væri orðin svo kvekkt því að hann væri 4 sinnum búinn að fara í andstopp og bla bla bla... Hvað fær fólk til að segja svona? Látið mig í friði og hugsið um hvað þið eruð að gera... Ég bara hata það hvað svona fólk getur látið mér líða illa Crying En sem betur fer á ég góða að sem að peppa mig upp á svona pirrings dögum!!! TAkk þið öll ég elska ykkur meira en allt InLove 

En yfir í allt annað...  Í gærkveldi þá komu Sunnan mín og Kamz til mín og við fórum að spila Scrable og háma í okkur snakk Shocking Kamilla fann upp á mörgum nýjum orðum eins og rassvél.. Og svo kom aðal orðið húkk.... Og hún bara ég meina hvernig húkkið þið ykkur far?? Og við bara allavega ekki hey ég er að "húkk" mér far heheheh.... En svo toppaði hún allt og bætti J inní og þá fékk hún hjúkk heheh... En þið redduðuð þessum sorgardegi mínum... Og svo var líka einn sem reyndi allt sem að hann gat Smile Gott að eiga góða vini Kissing En svo í morgun þá var það náttla bara workið og við vorum 4 að vinna... Hræðilegt því að það var ekkert að gera og ég þurfti að biðja Lilju að bora í nebbann minn fyrir mig því að ég nennti því ekki einu sinni orðið sjálf... OG audda gerði þessa elska það hehe LoL Svo fórum við út því að Lilja þurfti að fá smá hreint loft hehe Sick Og hún var í þessum fínu stöflerum og ekkert smá Dead sexy hehehe... Og ég náttla stóðst ekki freistinguna og tók mynd af henni hehe... 

21032008(001)

Og svo var hún að semja "Sjoppudansinn" og hún reyndar fór á kostum... Heheh... Verð bara að ná honum á video svo að ég geti sýnt ykkur hann hehe... Svo eftir vinnu þá var matur hjá múttu... Svo hringdi Sunnan mín og plataði mig á gönguskíði Gasp Og ég var nú til í það... Hef nú samt ekki stigið á gönguskíði síðan að við Ása Björg vorum litlar hérna í den... En allavega þá fórum við..... og fórum upp eina risa brekku og svo í miðri brekkunni segir Sunna... HEY einhversstaðar þurfum við að fara niður svona brekku og ég alveg með lollann í brókinni... Jamm ég veit hehehe... En allavega þá fórum við upp og svo á niðurleið þá ákváðum við bara að troða niður svo að krakka greyin þyrftu nú ekki að vera með köggla og för í brautinni á morgun... Ég meina við þorðum sko alveg að bruna niður en við erum bara svo góðhjartaðar hehe... En svo í miðri troðslunni Grin þá datt ég á bossann hehehe og kom á stað snjóflóði hehe Neee.. Bara að skrökva en ég datt samt Blush Og Sunna bilaðist úr hlátri því að ég var nánast stopp þegar að ég datt og var bara eikkað svo aulalegt heheh... En við vorum að gera góða hluti þarna! Og erum  búnar að ákveða það að fjárfesta í svona græjum... Verður nú samt örugglega bara fyrir næsta vetur Wink En svo eftir þessa helvíti skemmtilegu göngu þá var skundað í pottinn hjá Auði með Auði, Sunnu, Lilju og Kamillu.. Bara gaman sko LoL Hlógum mikið og vorum að rifja upp gamla tíma... Hehehe.... En allavega þá er ég orðin ógó þreytt og er að fara að sofa.. Vinna í fyrramálið svo ætla ég að fara að knúsa litlu frænku mína Jónasdóttur og spilla henni aðeins Halo Stóru frænkur meiga það alveg... Og svo verður það bara Sigló City.... Svo það er semsagt djamm á morgun... W00t 

En eigið góða helgi og borðið svo mikið af súkkulaði á Sunnudaginn Tounge Ég á allavega eitt páskaegg sem að ég ætla að slátra Cool

Goggi Göngugarpur


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Setja sinnep og setja sinnep síðan lauk og lauk .. híhí

Takk fyrir frábæra vakt .. og góða kvöldstund í pottinum .. Síðan ertu auðvitað svo mikill trend setter Esther að áður en langt um líður verða allir komnir með skapahár sem naglaskraut .. Múhahahah.

P.s.

Þú Og Sunna fáið stórann plús í kladdann hjá mér fyrir að hafa skellt ykkur á gönguskíði ..BARA GELLUR SKO! 

Lilja (IP-tala skráð) 22.3.2008 kl. 13:24

2 identicon

Vertu ekkert að hlusta á svona sögur, þú þarft ekki að skammast þín fyrir eitt né neitt.

En smáa bloggið ég byrjaði að lesa á föstudaginn langa og var að klára núna hehehe ;) djók :D

Sé þig :*

Siggi Skíðagarpur (IP-tala skráð) 23.3.2008 kl. 16:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband