10.4.2008 | 12:29
583 skilaboð.....
Hellu alle sammen....
Ég er fröken nenni ekki að hanga í tölvunni þessa dagana hehe... Svo að það er ástæðan fyrir að ég blogga bara akkúrat ekki neitt... En það er alveg nóg búið að vera að gera hjá kellu svo að ég ætti nú að geta dritað niður nokkrum orðum hérna....
En helgin var GEGGJUÐ Var að vinna á föstudaginn með Liljunni minni Og eftir vinnu þá.. Já alveg rétt hehe Var það bara rúntur og svo horft á Næturvaktina og svona... Svo á laugardeginum var ég vöknuð 6 en fór nú ekki á fætur fyrr en 9 Sko það var pabbahelgi og ég svaf EKKI út... En ég var allavega mætt á Döllas eldsnemma og fór í ljós og svo í smá Beauti treatment hjá Hildi minni Síðan var bara skundað á EyKey og splæst í eitt par af stöflerum á aðeins 15 þúsund.... Takk fyrir og svo var ilmvatnið mitt búið og pillan svo að ég þurfti að versla það líka svo að ég eyddi 25 þús kell á 30 mín en var í svona 2 fkn. vikur að vinna fyrir því hehe Djók... Sé ekkert eftir þessu!!!! En svo var ferming hjá Birnu systur Jönu sem að er kellan hans Tutla sem að er bróðir minn... Hehehe Og var svona helvíti skemmtilegt í henni að ég var þar í 4 tíma... Svo var það bara smá chill á EyKey áður en að það var skundað í fjörðinn fagra þar sem að 2 undurfagrar meyjar biðu mín heheh En ég fór heim til Lilju þar sem að hún og Mæja voru að sötra birra og bíða eftir mér... Er nebbla svo vinsæl þessa dagana En já við fórum á Höllina að heilsa upp á Omar þar sem að hann er að flytja úr firðinum fagra svo að við ákváðum að heiðra hann með nærveru okkar hehehe... En ég verð að viðurkenna að ég var orðin pínu ölvuð... Ruglaði aðeins eikkað um nóttina og sagði eikkað sem að ég hefði alveg mátt sleppa heheh Svo á sunnudeginum var ég að vinna allan daginn semsagt frá 10 til 21 og verð ég að viðurkenna að mér hefur aldrei þótt eins gott að leggjast á koddann hehe Svo á mánudeginum þá var ég líka að vinna á sjoppunni og svo verð ég að vinna allan daginn í Skiltos næstu vikur þar sem að það er alveg slatti að gera þar núna
En í kvöld er Nornakvöld Allir að mæta.... Bara gaman að fara og láta spá fyrir sér.... En ég lennti í einu mjög spúgí um daginn... Shit mar en ég ætla að hafa það bara fyrir mig og mína...
Svo á laugardaginn ætlar Lilja að vera svo sæt í sér að bjóða í mat og svo verður farið á Eykey á NýDönsk Shitturinn titturinn mellan og hóran hvað mig er farið að hlakka til....
En ætla að fara að fá mér HerbZ áður en að ég fer aftur að vinna hehe....
En hey einhver til í keppni yfir send skilaboð þennan mánuðinn??? hehehe....
Later - SexSterinn
Athugasemdir
Hahaha er komin í 350,,hugsa að ég nenni nú ekki að keppa við þig hahahahah myndi aldrei ná þér=) en klárlega er það nýdönsk um helgina
Una (IP-tala skráð) 10.4.2008 kl. 15:27
Elsku kellingin mín.
"Shitturinn titturinn mellan og hóran hvað mig er farið að hlakka til.... "
Stúdentinn sjálfur, þig hlakkar ekki til ÞÚ HLAKKAR TIL ! mannst það næst, það er ég hlakka ;) hehehe
En já, spúgí dæmið þitt er vægast sagt spúgí "og eitthvað miklu meira en það" svo ég vitni í eldri og reyndari ;) hehehehe
Sé þig á workinu á eftir honey :*
Kamilla Mjöll Haraldsdóttir (IP-tala skráð) 11.4.2008 kl. 12:17
Hey róleg á smsunum, gætir nú alveg sent mér eitt og eitt annað slagið fyrst þú ert alltaf að;) hehe
En góða skemmtun á nýdönsk, tekur birra fyrir mig:)
Sunna (IP-tala skráð) 11.4.2008 kl. 21:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.