Woohoo helgi....

Jæja.. Þá er komin helgi.... Pabbahelgi og ég er að segja ykkur það að ég hef aldrei á ævinni þráð pabbahelgi eins og núna hehe.... Er búin að hanga inni síðan á sunnudaginn og er komin með nettann leiða hérna.... Svo að það verður mjög gott að komast í vinnu í dag með Liljunni minni og Chilla svo í kvöld Wink Ætla nú samt að reyna að þrífa bílinn minn og setja sumarskóna undir hann... þ.e.a.s. ef að Garðar kemur nú tímalega að sækja prinsa prins í dag... Svo á morgun þá er það workið og svo verður skundað á Sigló City í skírn og matarboð... Spurning um að gista bara á Sigló og fá sér einn öllara með Jóka og Lindu... Sakna þeirra nebbla alltaf svo mikið Wink

En já síðustu dagar eru búnir að einkennast af því að þrífa upp ælu, skipta á shit-ableyjum og hanga inni í 100 stiga hita og horfa á TV... Það er stubbastund... Það er stubbastund.... Ég er íþróttaálfurinn.... Söngvaborg 1,2,3 OGGGG 4 Hrollur.... Madagaskar... Ég fíla að dilla dilla.... og Nemo.... Hló mikið að sjá fiskinn Dóru hehe Hildur mín þú átt svip ársinns 2007 þegar að þú tókst Dóru bwahaha... En já það má nú ekki gleyma Bubba byggir og Hér kemur Doddi.. Doddi, bílnum sínum á bíbb bíbb bíbb!!!!!!!!!!!!!!!!!!! HJÁLP ER AÐ MISSA VITIÐ hehehe....

.....En Má ég kynna með stolti...... DÓRU.....

DSC00739

En ég fór í gærkveldi til Hildar minnar sko hinnar hehe... Í wax og við vorum búnar að hlægja svo mikið eins og alltaf... En stelpur við viljum fara að hafa hitting.. OG ég skal kenna ykkur Partý og co... Bwahaha Ef þið þorið í mig aftur LoL En svo bennti hún mér nú líka á að hringja í Doksa og fara að láta skoða á mér magann því að ein vinkona hennar er með svipuð einkenni og ég og hún á kannski ekki skemmtilega tíma framundan en bænir mínar verða sko fyrir hana næstu daga... En já ég ætla allavega að hringja til Ásgeirs svo að hann geti sennt mig til magasérfræðings....

En jæja ætla að fara að taka út úr vélinni og viðra rúmfötin og þrífa pleisið áður en að ég leggst í leti... Svo er nú líka ágætt að sinna barninu aðeins hehe... Djók geri það ALLTAF....

En eigið góða helgi elskurnar

...Siggi Siglfirðingur...

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já mar ég er sko til í hitting;) kellan á sko ammæli um næstu helgi,,kannski ég bjóði bara heim á laugardeginum smá birri og svona hahaha, ,en shitturinn myndinn bwhahahahahaha snilldar helgi þetta,, verðum að endurtaka þetta einhvertíman...

Stunan (IP-tala skráð) 18.4.2008 kl. 11:32

2 identicon

Já shit mar þetta var ein skemmtilegasta helgi sem að ég hef upplifað hehe.... En já hvernig væri það að við myndum hittast um næstu helgi???.... Til er ég.... En ég væri sko alveg til í að fara á James Blunt eða Whitesnake.... Heheh... Er einhver með tussu í það??? En bara svo þið vitið það stelpur að ef að Daughtry kemur til landsins einhvern tímann þá verð ég fyrst að kaupa miða....

En góða skemmtun í kvöld.....

SexSterinn (IP-tala skráð) 18.4.2008 kl. 13:02

3 identicon

Ætla barasta ekkert að segja þér hvað ég er ánægð að fá ÞIG með mér í KVÖLD.. Fékk martröð í nótt um að  önnur  tæki þinn stað ... ætla sko  að  sulla  vel  í .......  á þér í kvöld ...hehehehe!

En mikið skil ég þig að þrá það að komast út!!! ferlega erfitt þegar þau eru veik svona lengi .. og mikið vona bara að pabbi gamli skili honum sprækum til baka!!!

Ég held svo að þú sért að ruglast með vaktina ég á fyrri á laugard og seinni á sunnudag ... síðast þégar ég vissi ...

Hlakka bara til að hitta þig!!! 

Lilja (IP-tala skráð) 18.4.2008 kl. 14:51

4 identicon

Loksins einhver, við Sunna fórum í bíó í gær og það  var Whitesnake auglysing, og ég bara oh sunna værirðu ekki til í að fara (með löngunarsvipinn í augunum) Hún horfði bara á mig "NEI" með hneykslunarsvipin ósparaðan eins og hún hafi bara fengið hann á útsölu í europris.

En já, virti himininn vel fyrir þér :) Hehehe.. Sé þig í vinnunni á mán. Vonandi :D

Boggi í Borginni (IP-tala skráð) 19.4.2008 kl. 22:01

5 identicon

Já sæll eigum við að ræða það eikkað....  En shit hvað ég er til í Whitesnake.. Sigvaldi smitaði mig sko alveg af þeim... En erum við þá að tala um 2 manna road trip party????? Grrrrr... MinnZ er með Pussu í það

SexSterinn (IP-tala skráð) 20.4.2008 kl. 02:58

6 identicon

Hæ elskan mín.. fór reyndar í hláturskast þegar ég sá myndina af Gyðu hehehehehe.. þvílíkur snillingur. En ertu búin að hringja í lækninn? *reiðissvipur* eins gott fyrir þig sexster!!! hehe.. en já þetta er ekkert til að djóka með..

en vonandi verður hittingur á laugardaginn hjá unu.. ég mæti sko pott þétt ef það verður eitthvað úr þessu..

Hildur Magg (IP-tala skráð) 24.4.2008 kl. 15:25

7 identicon

bwahahahahahah...hva ertu að troða þessari mynd inn Djöööö var þetta skemmtileg helgi!!!! Váá hvað við þurfum að endurtaka hana aftur stelpur við gott tækifæri I´M IN

Hilla Pilla (IP-tala skráð) 24.4.2008 kl. 17:48

8 identicon

Hvað er að gerast með bloggdrottninguna? Verður nú að standa þig svo titillinn verði ekki hyrtur af þér !

KamZ Hall (IP-tala skráð) 27.4.2008 kl. 16:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband