Færsluflokkur: Bloggar
6.11.2008 | 11:00
I´m still alive hehe
Ætlaði nú bara að leyfa ykkur að vita að ég er enn sprell lifandi
En ég hef bara ekki náð að draga mig neitt frá Facebook þannig að ég hef ekki getað sinnt bloggheiminum.... En þeir sem að eru ekki komnir með Facebook æðið ættu bara að hafa það þannig áfram því að mar er fastur þarna inni og hættir að sinna sínum daglegu verkum hehe....
En annars er allt gott að frétta af okkur Orra Erum í borginni núna því að Orri var hjá lækni og var að fá aftur Botox í lærin... Svo er planið að bruna á Selfoss á morgun og gista hjá Gígju, Helenu og Örnu Erum farin að hlakka mikið til því að það verður svo gaman að hitta þær og shit hvað við Gígja eigum eftir að blaðra mikið saman fram á nótt hehehe....
Sunnan okkar og Kameðlan komu til okkar þegar að við komum í gærkveldi og gistu með okkur Svo ef að ég fæ pössun fyrir Orra í kvöld þá er stefnan tekin á einhverja Hármodel sýningu þar sem að Sunna er módel... En annars er það bara dvd kvöld hehe...
En svo verður brunað norður á laugardaginn og farið að dunda sér eikkað Svo ætlum við að skella okkur á leikrit í firðinum fagra á sunnudaginn sem heitir "Á Svið"
En jæja ég ætla að hafa þetta gott í bili....
Later...... Esther og Orri
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
24.9.2008 | 00:29
Hann á afmæli í dag :o)
Hann á afmæli í dag... hann á afmæli í dag... woohoo... Jæja þá er ástin í lífi mínu orðinn 3 ára.... Og dottinn úr ábyrgð Svo að það er eins gott að hann verði þægur og bili ekkert...
En Jæja þá er geggjuð helgi að baki... Byrjaði á fimmtudaginn þegar að ég brunaði í borg óttans... Fór og hitti Sunnuna mína og Kameðluna mína og fórum við aðeins í kringluna og versluðum SMÁ og fórum svo og fengum okkur að borða á Nings og tjöttuðum svo aðeins um kvöldið... Síðan var bara kósýkvöld.... Svo á föstudeginum þá var búðast aðeins og svona.... Þurfti að vísu að fara á dekkjaverkstæði og láta laga dekkið á bílnum mínum þar sem að það var sprungið.. Hafði keyrt á nagla Svo fengum við Kamilla okkur sveitta Pizzu á Pizza Hut Og fórum svo heim í Sunnukot og fengum okkur nokkra kalda Svo kom Sunnan okkar heim úr workinu kl. 22 og fórum við þá að taka okkur til á djammið Vorum frekar slappar á djamminu og vorum komnar heim um 3.... Svo á laugardeginum þegar að ég vaknaði og fór út og ætlaði að fara að leggja af stað á Hellu í laxveiðina þá bara nei nei það var sprungið hjá mér og það á sama dekkinu Og í þetta sinn þá fékk ég skrúfu í dekkið Hversu miklar líkur eru á þessu???? HA???? heheh... En jæja dekkið var lagað og ég gat lagt af stað úr borginni Ég byrjaði veiðina á því að missa lax... og kastaði svo aftur útí og æltaði sko aldeilis að massa kvikyndið.. En nei nei ég festi og tók svo fast á stönginni að hún brotnaði og það tví heheh... En mar skellti bara í sig fleiri bjórum og gleymdi hremmingum dagsins... En ég bætti nú upp klúður laugardagsins og massaði 7 laxa á land á sunnudeginum Svo var náttla djúsað og djammað eins og morgundagurinn væri enginn og var alveg geggjað fjör á okkur og er ég farin að hlakka ekkert smá til að fara í fjölskylduveiðina aftur á næsta ári.. Það eru bara 365 dagar... woohoo... Svo í gærkveldi þá brunaði ég í borgina og átti kósýkvöld og hitti svo The sisters í hádeginu í dag og fengum við okkur að borða saman áður en minnz lagði af stað norður... Svo takk æðislega fyrir frábæra helgi elskurnar... Er farin að hlakka til að gera þetta aftur...
En svo vil ég biðja alla um að kveikja á kerti til að minningar um Hrafnhildi Lilju. Og senda svo fjölskyldu hennar góða strauma því þau þurfa á þeim að halda... Guð blessi góða stelpu!
...Esther Gestsdóttir...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
15.9.2008 | 22:24
Stutt en laggott.... heheh
Já kvöldið... ætlaði nú aðallega að deila með ykkur einu lagi sem að ég er með á heilanum... ég blogga svo kannski bara á morgun eða hinn... allavega áður en að ég fer suður.. en það eru bara 3 dagar þangað til En hérna kemur þetta líka magnaða lag... Enjoy
....Áki áttavillti kveður....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.9.2008 | 17:38
Dánarstund - þriðjudagurinn 9. sept kl. 17:02
Já kæru lesendur... Talvan mín sem að er búin að vera í viðgerð hjá Nesa frænda síðan í júní gaf upp öndina í dag Hún neitar að kveikja á sér og skil ég hana eiginlega alveg. Ég meina hún er náttla búin að vera í allt sumar hjá honum og hún hefur bara ákveðið að stytta sér lífið þar sem að hún hefur verið farin að halda að hún kæmi ekki aftur til mín... Ég skil hana ósköp vel... ekki það að það sé eikkað að honum Nesa frænda heldur skil ég hana alveg að geta ekki lifað án mín Sinnti henni alltaf svo vel... og eyddum við mörgum kvöldum saman
Svo að núna þarf kella að fara að finna penge fyrir nýrri tölvu og þá verður það sko fartölva... Jóki kom með þá uppástungu um að ég myndi losa mig við bílinn minn og fá mér ódýrari... Á ég þá bara að missa báða elskendur mína á einu bretti... Hmmmm... Uuuu nei!!!! Bíllinn minn fer ekki ... Allavega ekki alveg strax! Hlýt að finna aðra leið
Jæja Gunnsa gráðuga kveður...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Hva haldiði að kellu hafi tekist???? Að vera edrú og keyra aðra helgina í röð woohoo... En á laugardaginn þá bauð ég nokkrum útvöldum í grillaðan lax a la Esther Og eigum við að ræða það eikkað hvað þetta var mikil snilld... mmmmm... er enn með bragðið í munninum... En eftir þennan dýryndismat þá toppaði ég nú allt og bar á borðið franska súkkulaðiköku sem að kellan hafði skellt í.. Og Svnaborg mælti nú svo skemmtilega... Nú vantar bara að hnerra og þá er komin 100% fullnæging bwahahaha.. Hún er nebbla skuggalega góð... En við skulum hætta að tala um hana... Er farin að slefa alltof mikið hehe....
En eftir matinn þá var farið að dressa sig upp því að stefnan var sett á sjallann þar sem að gellzurnar æltuðu að fara að dansa eins og morgundagurinn væri enginn heheh... Og náttla ég var að keyra Ég skemmti mér alveg konunglega og fríkaði gjörsamlega út og ég verð eiginlega að segja að ég skemmti mér betur en þegar að ég er full... Og ég hélt að það væri nú ekki hægt eheheh.. en ég er búin að afsanna það fyrir sjálfri mér
En svo styttist orðið í veiðina.... aðeins 11 dagar þangað til.. Can´t wait... En ég ætla nú að fara suður eftir 9 daga... Kíkka í smá heimsóknir og svona... En jæja best að fara að dröllast til að hjóla sveitos... Svo later....
Drífa Driver
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
1.9.2008 | 13:56
Og hann slædaði bara mar... ;)
...Já komiði nú öll sæl og blessuð...
Jæja þá er enn ein helgin á enda... Og ÉG, Anton, Jana og Stuna skelltum okkur á Ey-key á Skímó... Bara stuð sko... Og eins og ég hafði sagt þá ætlaði ég að vera driver og ég stóð við það Það var nú líka bara alveg helvíti gaman skal ég segja ykkur hehe... En á leiðinni inneftir þá kom lag í útvarpinu sem að heitir "Traustur vinur" og við Una sprungum úr hlátri og ætluðum ekki að geta hætt að hlægja hehe.. Smá einkahúmor í gangi.. En þegar að við komum á Ak þá byrjuðum við á að fara á Kaffi Ak og nei nei byrjar ekki Einar Ágúst að spila það lag hehe.. Og ég sagði við Unu hvur ans... eltir þetta lag okkur uppi hehehe... En jæja nóg um einkahúmora hérna...
Svo skelltum við okkur í sjallann... Dönsuðum reyndar eins og enginn væri morgundagurinn heheh... Svo fórum við Jana mín saman á Dansgólfið og svo beygir litla fíflið sig eikkað niður og rís svo hratt upp á fætur aftur og var þá komin með grænar brillur sem að voru 30x10 cm eða eikkað hehe og bara Esther sjáðu mig bwahahaha... OG svipurinn á henni... hann er ógleymanlegur... Hún var líka aðeins í glasi hehehe
En svo eftir sjallann þá náðum við Jana honum Tutla bró loksins inn í bílinn og gátum þá farið að leggja í ann heim.. Skutlaði að vísu nokkrum heim og var reyndar vinsælasti leigubíllinn á svæðinu ... Hér kemur Esther, Esther.. bílnum sínum á.. bíbb bíbb bíbb... hehehe Þeir sem að horfa á Dodda eiga að þekkja þetta lag hehe... En svo þegar að við vorum lögð af stað og Anton og Jana dauð aftur í svo að ég þurfti að hlusta á Unu alla leiðina heim hehe djókur það var fínt að hafa hana... En allavega þá vorum við komin hjá Húsasmiðjunni þegar að kattaróféti hljóp út á götuna og ég náttla nelgdi niður og svo sá mar bara litla greyið á slædinu bwahaha... Við erum að tala um það að hann fór á hliðinni yfir götuna bwhahaha Þetta var svo geggjað fyndið mar.. En þetta er bara fyndið því að ég keyrði ekki á hann.. annars hefði ég nú ekki hlegið... En svo komum við heim rúmlega 6 og ég hélt ég myndi ekki ná honum bróður mínum út úr bílnum heheh... Náði Jönu út og þegar að hún var komin út þá kom litla gerpið sér bara betur fyrir í bílnum bwahahaha... En þetta hafðist allt á endanum
En já ég skora svo á Flugfélag Íslands að lækka verðið á fluginu verulega um helgina... Langar svo að skjótast suður í sólarhring en tími því ekki fyrir 18. þús.
En jæja skyldan kallar svo over & out
Gestsdóttir
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.8.2008 | 13:45
Komin með nýja vinnu ;)
Haldiði ekki að ég sé komin með nýja vinnu Var boðin vinna hjá Sinfoníuhljómsveit Íslands og verð ég nýjasta strengjahljóðfærið hjá þeim hehehe... En eigum við eikkað að ræða þessa strengi sem að ég er með.... ég rétt kemst upp stigann í vinnunni og svo sagði Tommi við mig í morgun... Esther helduru að þetta borgi sig???? Og ég sagði að það myndi gera það á endanum...
En yfir í allt annað...... Eigum við ekki að skella okkur í Sjallann á laugardaginn á Skítamóral??? Ég er með tussu í allt á laugardaginn OG vitiði hvað... ÉG ÆTLA AÐ VERA DRIVER ... Þanig að það er klárt svo... hverjir ætla með? Ég meina ef að mar ætlar í átak þá þýðir ekkert að vera að detta í það um helgar og ég er komin í bindindi þangað til að ég fer í veiðina 18. sept. Og þá ætla ég líka að taka á því... Gat ekki gert það í fyrra þar sem að ég var með bullandi hálsbólgu en núna er kella búin að láta rífa kirtlana úr sér og er game í allt.... Og svo eftir veiðina verður aftur bindindi til 17. okt... Eða lengur... fer eftir því hvernig ég stend mig í átakinu...
En jæja ætla að fara að gera eikkað svo.. Have a nice day
Já ég gleymdi einu... En ég er búin að taka þá ákvörðun að ef að ég stend mig vel og verð komin í þokkalegt form í vor þá ætla ég að reyna við inntökuprófið í Lögregluskólann
Stera
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
25.8.2008 | 23:03
Og það er........ Logi og Logi, Logi, Logi.....
Já komiði öll sæl og blessuð...
Ætla bara að koma því á framfæri að ég er ótrúlega stolt af því að vera Íslendingur Þvílíkt og annað eins Landslið sem að við eigum.... Verð nú að viðurkenna að mar gleymdi því stundum að mar var að horfa á Handboltaleik og var farin að slefa yfir einum sem að var sko On Fire... og fyrsti stafurinn er..... LOGI... OMG hvað hann er heitur.... En jæja ætla að hætta að tala um hann því að lyklaborðið er ekki vatnshelt heheh.... en ætla að setja eina mynd af kappanum hérna.... Enjoy Girls.... And some Boys eheheh
En yfir í mál málanna... MEGRUN nr.... bíðiði aðeins...... kann ekki að telja svona langt en allavega þá er ég enn og aftur farin af stað og ætla að stefna á 5 kg. fyrir 20. okt. Og ef að það tekst þá ætla ég að fara í borg óttans með Stununni minni.... En ef ekki þá verð ég eftir heima... Svo ég verð að standa mig because I really really wanna go.... Svo verður mar náttla að fara að losa sig við eikkað að þessum aukakílóum því að ég nenni ekki að ferðast með þau öll til Florida... En bara svona að minna ykkur á það að það eru bara 4 mán þangað til svo að minni er aldeilis óhætt að halda sig við efnið....
En svo var það helgin.... Shit hvað það var gaman á laugardagskvöldið... Ég og Júlía kíktum á Unu og svo vorum við að spá í að kíkka upp á bar en Una fékk ekki píu svo að við gleymdum bara þeirri hugmynd og héldum áfram að sötra hvítvínið okkar hehehe... Og btw. Við Júlía slátruðum 4 flöskum... Svo kom Heiddi hennar Júllu snúllu og með honum voru Oliver og Christian eða eikkað úr KS-Leiftur... OG við sátum bara við eldhúsborðið og sötruðum hvítvín eins og enginn væri morgundagurinn....Svo fór Heiddi og keyrði Christian heim.. en Heiddi var edrú.. Og pikkaði upp Árna og Mæju og Heiðu og Lúlla og kíktu þau aðeins á okkur... Svo fór liðið heim um 4 og Stunan mín inn í rúm en ég þurfti aðeins að klára eitt símtal fyrst og sagði henni að ég kæmi inn eftir smá tíma því að ég ætlaði að gista hjá henni og svo ætluðum við að vakna og horfa á leikinn saman... En þegar að ég var búin í símanum þá langaði mig allt í einu svona mikið heim svo að ég skreið heim og upp í rúm og kúrði í smá stund eða þangað til að ég var vakin af símanum... Sumir ætluðu ekki að láta mig missa af leiknum og hringdu eins og vitleysingar... hehehe
En jæja ætla að fara að halda áfram að horfa á Greys og henda mér svo í beddann... muniði svo bara að horfa ekki lengi á myndina af HR. Heitum og passa ykkur á að slefa ekki mikið á lyklaborðið ... Gæti farið illa....
SexSterinn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
24.8.2008 | 00:04
ÁFRAM ÍSLAND
Jæja ætla að hafa þetta stutt núna... Er heima hjá Stununni minni að sötra hvítt með Stunu og Júlíu og erum við að spá í að kíkka á Höllina og fá okkur bjór...
En ég ætlaði bara að minna alla á að stilla vekjarklukkuna á 7:30 í fyrramálið og kveikja á eittunni og horfa á strákanna okkar þegar að þeir valta yfir Frakkanna.
Svo ÁFRAM ÍSLAND... DUDUDUDUDUDUUUUUUUUUUUUUUUU.........
SexSterinn kveður að sinni
BTW... Takið eftir því hvað LOGI GEIRSSON er HEITUR..........
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.8.2008 | 09:58
Því Orri er kominn heim :-)
Jæja þá er pjakkurinn minn kominn heim Var rosa ánægð að fá hann aftur og koma reglu á lífið. Á þeim tíma sem að hann var hjá pabba sínum þá vann ég eins og vitleysingur og svo voru stærstu djammhelgarnar teknar... Húsó, Versló og Fiskidagurinn... Púfff.... En sem betur fer er þetta allt saman búið og ég komin með músina...
Næsta djamm sem að er planað hjá mér er laugardagurinn 20. sept. En þá hefst fjölskylduveiðin er orðin eikkað miklu meira en spennt get ég sagt ykkur... Er búin að skora á Aron frænda í keppni... Hvor landar fleiri löxum... Þetta verður sko engin bleikjuveiði eins og hjá sumum sem að ég þekki heheh...
Ég er samt að spá í að fara suður á fimmtudeginum og hanga aðeins með Sunnunni minni og Kamillu...
Helgin er búin að vera helvíti góð. Fórum einn rúnt á föstudaginn eftir kvöldmat og kíktum til Stínu og Stjána og vá hvað hann var ánægður að sjá þau... Svo kom Gerður þangað og ég hélt að hann færi yfir um hehehe Geggjað sáttur að sjá alla Svo spurði Gerður hann hvar allt hárið hans væri... Þá kom bara abba skamm hehe... En hann er ekki sáttur með það að hann hafi verið krúnurakaur.... Og svo kennir hann pabba sínum um það heheh... En þetta verður sko ekki gert aftur því að þetta er mjög vðkvæmt mál ehehe... Svo gaf pabbi hans honum skó.... En þegar að hann er spurður hver hafi gefið honum þessa flottu skó þá segir hann mamma... hehhe.... Greinilega mikill mömmukall og allt frábært sem að mamma gerir eða gerir ekki heheh... Svo í gær þá vöknuðum við hálf 9 og fengum okkur morgunmat og lékum okkur aðeins í dótinu hans og fórum svo á göngu og fórum að kveðja Sunnu og Kamillu því að þær voru að fara til rvk. í skóla. Svo fórum við að horfa á Alexíu í fótbolta og hefðu þær átt að rústa þessum leik en þetta endaði með jafntefli 3-3... Eftir leikinn fórum við í kaffi til Maríu frænku því að Björn var með okkur á göngu Síðan tókum við Orri smá beauti-blund heheh... Svo var það bara matur hjá gömlu og svo komu Anton og Jana og við horfðum á 2 ræmur.... Bara nice...
En svo er það bara Ak-city í dag... Lexa er að fara að keppa aftur í dag og ætlum við mamma að skella okkur inneftir og horfa á hana og kíkka svo eikkað í búðir og heimsóknir. En jæja ætla ekki að hafa þetta lengra, ætla að fara að henda mér í sturtu og græja okkur fyrir Ak.
SexSterinn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)